um okkur



Menam býður upp á grinilega rétti úr fersku, íslensku gæða hráefni, matreidda undir thailenskum áhrifum. Með því að nýta besta mögulega hráefni úr nærumhverfinu hverju sinni og matreiða það með töfrum thailenskrar matargerðar, er það besta dregið fram frá báðum heimum.



Menam er thailenska og þýðir einfaldlega við fljótið.  Það er því við hæfi að veitingastaðurinn sem staðsettur er við eina vatnsmestu á landsins, Ölfusá, beri nafnið Menam.



Menam var stofnað árið 1997 af thailenskri konu og íslenskum eiginmanni hennar en hefur síðan 1999 verið í eigu sömu fjölskyldunnar. Alla tíð var Menam lítill fjölskyldurekinn veitingastaður að Eyravegi 8 á Selfossi, eða allt til ársins 2018 þegar staðurinn var seldur, en vörumerkið Menam hélst áfram í eigu fjölskyldunnar. Árið 2021 var ákveðið innan fjölskyldunnar að taka aftur upp vörumerkið Menam og opna thailenska hluta staðarins, í smækkaðri útgáfu, á nýjum stað undir nýjum merkjum.

 

Gömlu gildin verða þó áfram höfð í heiðri og verður boðið upp á góðan mat á sanngjörnu verði. Nýi staðurinn er staðsettur í Mjólkurbúinu mathöll í nýjum miðbæ Selfoss.



Byggt á áherslum okkar um árstíðabundið og íslenskt hráefni, matreitt undir framandi og litríkum áhrifum thailenskrar matargerðar eru einkunnarorð staðarins ferskt og freistandi.

Share by: