Bóka gistingu

Menam - tímamót
Í gær, sunnudaginn 30. september var síðasti starfsdagur Menam í þeirri mynd sem hann hefur verið rekin síðustu 21 ár.
Þeir aðilar sem tóku við rekstrinum nú í sumar keyptu ekki vörumerkið "Menam" en fengu að nota nafnið og reka Menam fram á haustið meðan þau undirbjuggu breytingar á staðnum því ekki þótti skynsamlegt að breyta um matseðil og nafn á miðri sumarvertíð.
Á laugardaginn kemur (6. október) mun því opna nýr og efnilegur veitingastaður í húsnæðinu að Eyravegi 8 - VEITINGASTAÐURINN KRISP - sem leggur áherslu á ferska nálgun á hollusturéttum fyrir fjölskylduna.
Margir hafa spurt - hvað verður um Menam og matinn sem hefur þar verið framreiddur síðustu 20 ár? Mun Menam hætta starfsemi endanlega?
Svarið við því er líklega nei - við sem eigum "Menam" vörumerkið erum að skoða hvaða möguleikar eru í stöðunni. Við höfum verið að skima eftir hentugu húsnæði á Selfossi með það í huga að opna á nýjum stað með breyttu sniði - leggja áherslu á hraða og góða þjónustu í hádeginu og "take away" á kvöldin.
Næstu dagar og vikur munu því skera úr um það hvort og þá hvernig Menam mun eiga framhaldslíf....
Fylgist með á þessum vettvangi!
....JÓLADAGATAL MENAM - 9. des
"Dagur 9.
Kæri jól.... vinur. Á jóladaginn níunda við á Menam færum þér ...."
Tom Yum Gung súpu með rækjum.
Verð áður kr. 2.490,-
Í DAG kr. 1.990,-
Hlökkum til að sjá þig!
MENAM | Eyravegur 8 | Sími: 482-4099 | menam@menam.is | Menam á Facebook